Hallormsstaður
Ber og sveppir í skóginum

Nú fara flest ber að verða þroskuð í skóginum. Hrútaberin eru þroskuð á sólríkum stöðum en þau eru hægt að tína fram í október. Fyrir viku  fóru hindberin að verða  rauð og næstu 2 - 3 vikur og mætti safna á hverjum degi. Rifsið er óðum að verða rautt eða gult. Já gult það eru vaxnir upp allmargir runnar með gulu rifsi í skóginum, gular rifsið er bragðbetra en það rauða en ekki eins fallegt í sultur.

Aðeins er um bláber í skóginum en þá meðfram stígum og vegum og á sólríkum stöðum .

 

 

Hindber mynd tekin 2 sept ´10

 

Ekki hefur verið mikil sveppatíð, en þeir eru sveppurinn er að  skjóta upp kollinum á ýmsum stöðum. Lerkiskógurinn hér á Hallormsstað er orðin það gamall að ekki er mikið um lerkisveppi. Mest er af lerkisvepp í skógi sem er um 15-30 ára gamall og þar um kring.

 

Gult rifsber fullþroska'mynd tekin 2 sept ´10

 

Tjaldsvæðin í skóginum eru opinn fram í miðjan september.

 
Ormsteiti 15. ágúst

Í Hallormsstaðaskógi...

Árleg Ormsteitisganga Ferðafélags Fljótsdalshéraðs. Gengið verður á Rembuna og endað á tónleikum í skóginum.
Leitin að gulli Ormsins. Fársjóðsleikur fyrir fjölskyldur!
Nauðsynlegt að vera á bíl. Skráning og afhending leitargagna í
Atlavík og leitin verður á því svæði.
Sá á fund sem finnur! Vegleg verðlaun í boði.

Björgvin Franz skemmtir börnum í Mörkinni í Hallormsstað í boði
Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs.

Tónleikar í Mörkinni – Trjásafninu
Að þessu sinni eru það Nesi, Sjana og hinar kellingarnar.
Þessi hljómsveit skipuð frábæru tónlistarfólki, þar á meðal Andrea Gylfa, Kristjana Stefáns og Guðrúnu Gunnars. Hljómsveitin mun spila ameríska þjóðlagamúsík og fleira í bland.
Dregið í perluleik Ferðafélagsins og verðlaunaafhending úr fjársjóðsleit í hléi á tónleikunum.

www.ormsteiti.is

 

 
Um Hallormsstað

Hallormsstaður var fyrrum prestssetur og kirkjustaður. Byggðahverfi hefur myndast á Hallormsstað í tengslum við skólahald, ferðaþjónustu og starfsemi Skógræktar ríkisins. Hallormsstaðarskógur er stærstur skóga á landinu. Skógræktarstöð var stofnsett á Hallormsstað árið 1903 og skógurinn friðaður 1905.

Merkilegt trjásafn er í Hallormsstaðarskógi. Göngustígur liggur um safnið og eru þar listsýningar og ýmsar uppákomur, meðal annars Skógardagurinn mikli, en þá er m.a. haldin Íslandsmeistaramót í skógarhöggi.   Atlavík, innarlega í skóginum, er vinsæll áningarstaður ferðamanna.

 

Hallormsstaðarskógur er víðáttumesti skógur landsins. Hann liggur meðfram Lagarfljóti (Leginum) að austanverðu.

Árið 1903 hófust þar tilraunir með plöntun erlendra trjáa en stórfelld ræktun hófst fyrst eftir 1950. Nú hafa verið gróðursettar í Hallormsstaðarskógi um 50 tegundir erlendra trjáa frá 177 mismunandi stöðum. Elsti lerkilundurinn var gróðursettur árið 1938 og heitir Guttormslundur, kenndur við Guttorm Pálsson sem var skógarvörður á Hallormsstað í 46 ár.

Atlavík er innarlega í skóginum en við hana er vinsælt tjaldsvæði. Einnig er nýtt tjaldsvæði í Höfðavík, en þar er góð aðstaða fyrir húsbíla og fellihýsi.

Í Hallormsstaðarskógi hefur nú fjölmargt verið gert til að gera ferðafólki svæðið aðgengilegt, m.a. hafa verið lagðir göngustígar um skóginn auk þess sem opnað hefur verið trjásafn í gróðrarstöðinni Mörkinni sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara á ferð um Austurland.

 

 
© 2010. Hallormsstaður. Hönnun: Austurnet ehf