Viðburðir


Ormsteiti 15. ágúst

Í Hallormsstaðaskógi...

Árleg Ormsteitisganga Ferðafélags Fljótsdalshéraðs. Gengið verður á Rembuna og endað á tónleikum í skóginum.
Leitin að gulli Ormsins. Fársjóðsleikur fyrir fjölskyldur!
Nauðsynlegt að vera á bíl. Skráning og afhending leitargagna í
Atlavík og leitin verður á því svæði.
Sá á fund sem finnur! Vegleg verðlaun í boði.

Björgvin Franz skemmtir börnum í Mörkinni í Hallormsstað í boði
Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs.

Tónleikar í Mörkinni – Trjásafninu
Að þessu sinni eru það Nesi, Sjana og hinar kellingarnar.
Þessi hljómsveit skipuð frábæru tónlistarfólki, þar á meðal Andrea Gylfa, Kristjana Stefáns og Guðrúnu Gunnars. Hljómsveitin mun spila ameríska þjóðlagamúsík og fleira í bland.
Dregið í perluleik Ferðafélagsins og verðlaunaafhending úr fjársjóðsleit í hléi á tónleikunum.

www.ormsteiti.is

 

 
Skógardagurinn mikli

   

 
Hallormsstaðardagur Ormsteitis


09.30 Árleg Ormsteitisganga Ferðafélags Fljótsdalshéraðs. Að þessu sinni verður gengið yfir Rembuna í fylgd Braga Björgvinssonar. Endað á tónleikum í skóginum. Mæting kl. 9.30 við Upplýsingamiðstöðina á Egilsstöðum. Sameinast í bíla. Allir velkomnir. Verð kr. 500. Frítt fyrir börn.

11:00 Skoppa og Skrýtla í Atlavík. Frítt fyrir alla í boði Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs.


12:00 Leitin að gulli Ormsins. Fársjóðsleikur fyrir fjölskyldur! Nauðsynlegt að vera á bíl. Skráning og afhending leitargagna í Atlavík og leitin verður á því svæði.
Sá á fund sem finnur! Vegleg verðlaun í boði.

12 :30 Hádegissigling og léttar veitingar um borð í Lagarfljótsorminum.


14.00 Keppni í plöntugreiningu við Laufið, veitingaskála Hallormsstað. Umsjón Jóhann Gunnarsson. Skemmtilegur og fræðandi fjölskylduleikur. Verðlaun í boði!


15.00 Tónleikar í Mörkinni – Trjásafninu.
Að þessu sinni eru það Mannakorn sem troða upp. Hljómsveitin mun spila lög af nýútgefnum geisladisk sínum í bland við þau gömlu og góðu. Ef rignir og verður kalt færast tónleikarnir inn í Gróðurhús Skógræktarinnar. Styrtaraðilar tónleikanna eru N1 og Flugfélag Íslands.


Forsala klukkan 10.00 - 12.00 laugardagin 15. ágúst í Samkaup verð 1.500.- en við innganginn 2.000.-

Dregið í perluleik Ferðafélagsins og verðlaunaafhending úr fjársjóðsleit í hléi á tónleikunum.
Nestispokar seldir í Laufinu og pylsusala á svæðinu :o)

 
Dagskrá Skógardagsins mikla

Á afmælisdegi bændaskógræktar á Héraði 20. júní verður boðið til einstakrar fjölskylduog skógarhátíðar í Hallormsstaðaskógi.
Í boði er fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna og frítt inn á svæðið. Félag skógarbænda á Austurlandi, Héraðs- og Austurlandsskógar, Skógrækt ríkisins og Barri ásamt styrktaraðilum bjóða þér að koma, fagna með okkur og njóta góðrar skemmtunar og ljúffengra veitinga í fallegu skógarumhverfi. 

Dagskrá
í Trjásafninu í Mörkinni á Hallormsstað.

11:00-12:00 Skráning í skógarhlaup og skemmtiskokk.
12:00 Skógarhlaupið - ræsing í 14 km hlaup um skógarstíga. (Nánar á www.hlaup.is og www.heradsskogar.is) Verðlaun í skógarhlaupinu eru einstakir útskornir gripir.
12:30 Fjölskylduhlaup - ræsing! (4 km skemmtiskokk fyrir alla fjölskylduna, bæði litla og stóra.)
13:00-16:00 Formleg hátíðardagskrá. (Magga og við hin syngjum skógardagslagið svo undir tekur í skóginum.)
13:30 Íslandsmeistarakeppni í skógarhöggi - keppni milli fremstu skógarhöggsmanna landsins - þar sem allt er í alvöru.
  •  Tónlistaratriði - Blúsband Guðgeirs.
  •  Fiðrildin flögra um skóginn og bjóða upp í dans og nú verða allir með!
  •  Pjakkur og Petra spjalla við börnin um lífið í skóginum.
  •  Skógarþrautir - léttar og skemmtilegar.
  •  Boðið uppá heilgrillað naut að hætti Héraðsmanna.
  •  Nauta- og skógarbændur ganga um beina og bjóða gestum og gangandi.
  •  Grillaðar pylsur - Sumardrykkur frá M.S. - ferskur og frískandi.
  •  Sjóðheitar skógarlummur með ilmandi rabarbarasultu og sjóðheitu ketilkaffi.

 Hér getur þú sótt dagskrá Skógardagsins mikla á PDF formi

 
Hringdu í skóginn
 
<< Byrja < Fyrra 1 2 Næsta > Endir >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
© 2010. Hallormsstaður. Hönnun: Austurnet ehf