Skógardagurinn mikli verður 20. júní 2009. Eins og venjulega verður mikið um að vera, skógarhlaup, Íslandsmeistaramótið í skógarhöggi, söngur, skemmtiatriði, grillað naut og ýmsar aðrar veitingar.
Skógardagurinn mikli er samstarfsverkefni Skógræktarinnar, Héraðs- og Austurlandsskóga, Félagsskógarbænda, Gróðrarstöðvarinnar Barra hf og fleiri aðila sem tengjast skógrækt á einn eða annan hátt.