
09.30 Árleg Ormsteitisganga Ferðafélags Fljótsdalshéraðs. Að þessu sinni verður gengið yfir Rembuna í fylgd Braga Björgvinssonar. Endað á tónleikum í skóginum. Mæting kl. 9.30 við Upplýsingamiðstöðina á Egilsstöðum. Sameinast í bíla. Allir velkomnir. Verð kr. 500. Frítt fyrir börn.
11:00 Skoppa og Skrýtla í Atlavík. Frítt fyrir alla í boði Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs. 12:00 Leitin að gulli Ormsins. Fársjóðsleikur fyrir fjölskyldur! Nauðsynlegt að vera á bíl. Skráning og afhending leitargagna í Atlavík og leitin verður á því svæði. Sá á fund sem finnur! Vegleg verðlaun í boði.
12 :30 Hádegissigling og léttar veitingar um borð í Lagarfljótsorminum. 14.00 Keppni í plöntugreiningu við Laufið, veitingaskála Hallormsstað. Umsjón Jóhann Gunnarsson. Skemmtilegur og fræðandi fjölskylduleikur. Verðlaun í boði!
15.00 Tónleikar í Mörkinni – Trjásafninu.  Að þessu sinni eru það Mannakorn sem troða upp. Hljómsveitin mun spila lög af nýútgefnum geisladisk sínum í bland við þau gömlu og góðu. Ef rignir og verður kalt færast tónleikarnir inn í Gróðurhús Skógræktarinnar. Styrtaraðilar tónleikanna eru N1 og Flugfélag Íslands.
Forsala klukkan 10.00 - 12.00 laugardagin 15. ágúst í Samkaup verð 1.500.- en við innganginn 2.000.-
Dregið í perluleik Ferðafélagsins og verðlaunaafhending úr fjársjóðsleit í hléi á tónleikunum. Nestispokar seldir í Laufinu og pylsusala á svæðinu :o)
|