|
Dagskrá Skógardagsins mikla |
|
Á afmælisdegi bændaskógræktar á Héraði 20. júní verður boðið til einstakrar fjölskylduog skógarhátíðar í Hallormsstaðaskógi. Í boði er fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna og frítt inn á svæðið. Félag skógarbænda á Austurlandi, Héraðs- og Austurlandsskógar, Skógrækt ríkisins og Barri ásamt styrktaraðilum bjóða þér að koma, fagna með okkur og njóta góðrar skemmtunar og ljúffengra veitinga í fallegu skógarumhverfi.
Dagskrá í Trjásafninu í Mörkinni á Hallormsstað. 11:00-12:00 Skráning í skógarhlaup og skemmtiskokk. 12:00 Skógarhlaupið - ræsing í 14 km hlaup um skógarstíga. (Nánar á www.hlaup.is og www.heradsskogar.is) Verðlaun í skógarhlaupinu eru einstakir útskornir gripir. 12:30 Fjölskylduhlaup - ræsing! (4 km skemmtiskokk fyrir alla fjölskylduna, bæði litla og stóra.) 13:00-16:00 Formleg hátíðardagskrá. (Magga og við hin syngjum skógardagslagið svo undir tekur í skóginum.) 13:30 Íslandsmeistarakeppni í skógarhöggi - keppni milli fremstu skógarhöggsmanna landsins - þar sem allt er í alvöru. • Tónlistaratriði - Blúsband Guðgeirs. • Fiðrildin flögra um skóginn og bjóða upp í dans og nú verða allir með! • Pjakkur og Petra spjalla við börnin um lífið í skóginum. • Skógarþrautir - léttar og skemmtilegar. • Boðið uppá heilgrillað naut að hætti Héraðsmanna. • Nauta- og skógarbændur ganga um beina og bjóða gestum og gangandi. • Grillaðar pylsur - Sumardrykkur frá M.S. - ferskur og frískandi. • Sjóðheitar skógarlummur með ilmandi rabarbarasultu og sjóðheitu ketilkaffi. Hér getur þú sótt dagskrá Skógardagsins mikla á PDF formi
|