| Listsýning í skóginum: |
|
Um er að ræða landslagsverkefni sem beinir athygli fólks að flokkun upplýsinga í umræðu um loftslagsmál. Á okkur dynja upplýsingar, mótsagnakenndar staðreyndir og mismunandi vísindalegar upplýsingar sem settar eru fram sem sannleikur séu. Við neyðumst til að sía upplýsingarnar og nota þá athygli okkar, skilning og minni til að velja úr því sem berst að, svo að við getum staðið af okkur þennan straum. Ómælt upplýsingamagnið og framsetning þess geta haft öfug áhrif og beinlínis lokað fyrir og leitt af sér áhugaleysi og magnleysi.
eins og segir í lýsingu verkefnisins.
Listsýningin verður sett upp í Danmörku, Svíþjóð og á Hallormsstað í júní og stendur fram til vors 2010. |